Ótrúleg áhrif Straumlindar til lækkunar raforkuverðs!

Í dag kynnti Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skýrslu sem Umhverfis- og orkustofnun vann um þróun raforkukostnaðar og áhrifum á notendur. Farið var yfir ýmis atriði og margt áhugavert kom fram.
Það sem stóð þó algerlega upp úr að okkar mati var mynd sem sýnir 1) þróun lægsta smásöluverðs (græn lína), 2) þróun vísitölu heildsöluverðs (bleik lína) og 3) þróun forgangsorkuverðs Landsvirkjunar (LV) (dökkblá lína) frá 2006 til dagsins í dag.
Það fyrsta sem við hugsuðum var einfaldlega: Eru þið að sjá þetta?!
Og hvað sáum við svona merkilegt á þessari mynd? Jú...
Sjáið þið verðbilið á milli forgangsorkuverðs LV og lægsta smásöluverðs 2007-2021? Það er álagning upp á 1-2 kr. á kWst nánast allt tímabilið!
Sjáið þið hvernig þróun forgangsorkuverðs LV tók að lækka 2015-2018 en lægsta smásöluverð hækkaði á sama tíma? Þessi mótsagnakennda þróun var ein ástæða þess að Straumlind var stofnuð!
Sjáið þið hvernig lægsta smásöluverð lækkar af krafti í byrjun árs 2021? Straumlind kom á markað 1. mars 2021. Við lækkuðum verðið 15 sinnum á fyrstu tveimur árum rekstrarins!
Sjáið þið hvernig lægsta smásöluverð stendur í stað frá 2021-2024 þótt forgangsorkuverð LV fari sífellt hækkandi? Straumlind hélt eins lengi aftur af verðhækkunum og var mögulegt. Þegar við urðum að hækka var hækkunin höfð eins lág og kostur var.
Sjáið þið hvernig framlegð af sölu raforku til heimila var í raun neikvæð frá 2021-2025 (þ.e. innkaupaverð var hærra en útsöluverð)? Athugið að neikvæð framlegð á bara við hjá þeim raforkusölum sem eru að bjóða lægsta verðið!
Almennt verð hjá stærstu raforkusölunum (ON, Orkusölunni og HS Orku) er 15-30% hærra en hjá Straumlind - og hefur verið síðastliðin 4 ár! Enn sem komið er samanlögð markaðshlutdeild þeirra um 65%.
Það eru því ansi mörg íslensk heimili sem eru að fara á mis við að fá sama rafmagn, bara ódýrara hjá Straumlind!
Ef öll íslensk heimili væru í viðskiptum hjá Straumlind myndu þau spara sér meira en milljarð í raforkukostnað á ári!
Vertu með og skráðu þig hjá Straumlind í dag!
Fyrst birt þann 16. júní 2025